3 ágú. 2004Allan Foss landsliðsþjálfari Dana mætir á tvo fyrstu landsleikina gegn Póllandi um næstu helgi. Foss mætir til að "njósna" um íslenska liðið, en Ísland og Danmörk eru saman í riðli í Evrópukeppni landsliða. Þjóðirnar mætast í Århus 10. september. Foss verður í DHL-höllinni á föstudagskvöldið á fyrsta landsleiknum gegn Pólverjum og síðan aftur á leiknum í Stykkishólmi á laugardaginn. Hann verður farinn til baka til Danmerkur fyrir síðsta leikinn í heimsókninni, sem verður í Keflavík á sunnudagskvöld.